Öndun er lykillinn að árangursríku skriðsundi

Öndun er lykillinn að árangursríku skriðsundi, en sund er tækniíþrótt þar sem skiptir máli að greina og vinna með tæknina áður en lengra er haldið. Ef við ímyndum okkur danskennslu að þá þurfum við að læra sporin áður en við förum að dansa dansinn. Hvað þarf að vera til staðar áður en lengra er haldið og hvernig áttar þjálfari sig á getu einstaklinga? Mikilvægt er að greina einstaklinginn og það geri ég með eftirfarandi hætti:

Greining

  • Líkamstjáning
  • Flotæfingar
  • Styrkæfingar
  • Bringusund

Vatnshræðsla:
Sumir eru vatnshræddir og þá er mikilvægt að vinna með vatnshræðslu áður en farið er að kenna sundtökin, en það er annar fasi sem ekki er hægt að kenna jafnhliða skriðsundskennslu.

Öndun:
Er stór hluti að sálfræði við sundkennslu, mikilvægt er að ná að kenna öndun í öllum sundaðferðum. Ekki er hægt að halda áfram með sundkennslu fyrr en öndun er kominn. Muna að við fráöndun slökum við á, ef einstaklingur nær ekki að anda frá sér í vatninu byggist spenna.

  • Ekki hægt að anda inn ef það er spenna til staðar
  • Ekki hægt að framkvæma sundtök og hreyfa líkamann ef það er spenna
  • Sálrænt erfitt
  • Eyðum mikilli orku
  • Líkamstaðan verður í vatninu verður of lág vegna spennu

Fleiri færslur

Sund
Johanna

Kostir sundiðkunar

Sund er frábær æfing að því leytinu til að þú hreyfir allan líkamann gegn mótstöðu vatnsins og notar hvern einn og einasta vöðva í líkamanum

Read More »
Sundfit blöðkur
Blöðkur
Johanna

Hvernig blöðkur henta þér?

Þessa spurningu fáum við reglulega og það er ekki til neitt eitt rétt svar við þessari spurningu. Það eru nokkrir hlutir sem þarf að hafa í

Read More »